|
SMT - FRÉTTIR:
24. jan. 2012. Nú er
búið að setja inn á síðuna kennsluáætlun vorannar fyrir
Regnboga. Byrjað var að kenna yfirreglurnar fjórar núna
í janúar og svo er bætt við smám saman fram í maí.
Innlögnin hefur gengið ljómandi vel það sem af er og
börnin voða ánægð með Bros-orminn sinn sem vex og dafnar
samhliða því sem þau tileinka sér að nota innirödd, fara
eftir fyrirmælum, ganga vel um og gæta handa sinna og
fóta :-)
Sjá
hér
Á Sól og Mána ætlum við að leggja megináherslu á
yfirreglurnar fjórar á vorönn ásamt því að vinna
markvissar með lausnaleit og leggja áherslu á
heimspekilega gagnrýna umræðu um það sem snýr að
siðferðisvitund, eigin tilfinningum og annarra og efla
með því
félagsfærni barnanna og hæfileikann að setja sig í spor
annarra. Ekki er áætlað að vera með sérstaka SMT umbun á
önninni eins og verið hefur heldur vinna enn meira með
félagslegu hvatninguna.
4. okt. 2011.Nú erum við
byrjuð að rifja upp og æfa yfirreglurnar og
einveruferlið með börnunum á Sól og Mána. Kennsluáætlun
fyrir haustönn má skoða hér fyrir ofan. Á Regnboga
verður unnið í anda SMT en ekki byrjað að kenna reglur
fyrr en á vorönn 2012.
4. okt. 2011. Áslaug
kennari á Sól fer á grunnnámskeið í PMT foreldrafærni í
vetur. Alls eru þetta fjórar lotur, tveir dagar í senn.
Tvær lotur verða fyrir áramót og tvær á vorönn. Áslaug
er áttundi kennarinn frá Pálmholti sem sækir
grunnmenntunina.
14. júní 2011.
Undanfarnar vikur höfum við verið að vinna með SMT-
lausnaleit. Það er eitt af verkfærunum sem SMT-
skólafærnin notast við. Með þessu verkfæri er leitast
við að fá börn og kennara til að leysa vandamál sem upp
koma í skólastarfinu saman. Börnin á Mána gerðu
samning
um að nota inniröddina til að koma í veg fyrir óþarfa
hávaða. Börnin komu sér saman um hvaða leiðir best væri
að fara. Kennararnir aðstoðuðu þau við að meta kosti og
galla leiðanna, t.d. komumst við að því að ekki er hægt
að "taka munninn af". Eftir að kennari skrifaði
samninginn niður, skrifuðu börnin undir hann annað hvort
með nafninu sínu, upphafsstöfum eða fingrafari. Börnin
fengu bros þegar vel gekk og endaði það með umbun núna
14. júní en þá fengu börnin að baka skúffuköku. Myndir
hér.
22. feb.2011 Nú er
Hafdís byrjuð á PMT- grunnnámskeiði og mun sækja fjórar
tveggja daga lotur á vorönninni. Fyrsta lotan er búin en
næstu lotur eru 2. og 3. mars, 4.og 5. apríl og 12. og
13. maí. Hafdís er sjöundi starfsmaðurinn sem sækir
þessa grunnmenntun í PMT þannig að ekki er hægt að segja
annað en að skólinn búi vel að þessu leyti. Sigrún Ella
byrjaði námið í haust en þurfti að hætta vegna veikinda.
20. janúar 2011. Við
höldum ótrauð áfram með SMT- skólafærnina okkar og erum
nú búin að gera kennsluáætlun fyrir vorönnina. Á
Regnboga er verið að byrja að leggja inn fyrstu
reglurnar en á Sól og Mána er haldið áfram að rifja upp
reglur og viðhalda jákvæðum aga ásamt því að bæta við
lausnaleit síðar á önninni. Allt gengur þetta ljómandi
vel og hefur góð áhrif á skólaandann.
22. sept. 2010. Á
haustönn mun Sigrún Ella Meldal sækja grunnnámskeið í
PMT-foreldrafærni og er hún sjöundi starfsmaðurinn frá
Pálmholti sem sækir námskeiðið sem skiptist í fjórar
tveggja daga lotur.
22. sept. 2010. Nú er
búið að vinna upp áætlun fyrir kennslu og upprifjun á
SMT skólafærninni okkar fyrir haustönnina. Máni og Sól
hafa sitt hvora áætlunina en á Regnboga bíðum við með
innlögn þar til eftir áramótin. Foreldrar allra nýnema
fengu kynningu á agastefnu leikskólans í september. Eins
og sjá má í áætluninni er verið að draga úr hvatningu í
formi brosa en þess í stað lögð mun meiri áhersla á
félagslegu hvatninguna. Hér má sjá áætlanirnar fyrir
Sól
og Mána
10. mars 2010. Í lok
nóvember 2009 lukum við innlögn á öllum SMT - reglum
skólans bæði á Regnboga og Sól. Máni byrjaði frá grunni
með innlögn fyrir yngstu börnin enda voru þau að kynnast
agastefnu skólans. Innlögn gekk mjög vel og börnin fljót
að tileinka sér reglurnar. Börnin söfnuðu Brosum
og fylltist ormurinn á Mána, hjartað á Regnboga og
staukarnir á Sól jafnt og þétt við hverja innlagða
reglu. Eftir áramótin hafa kennarar verið að fara yfir
reglurnar og velta fyrir sér hvort hægt sé að sleppa
einhverjum reglum eða sameina tvær reglur í eina.
Niðurstaðan var sú að reglum var fækkað úr 33 í 17
reglur. Undanfarnar vikur höfum við verið að rifja upp
yfirreglurnar með börnunum og hefur það gengið mjög vel.
Á næstu vikum er áætlað að fara vel yfir mörkin og æfa
einveruferlið með börnunum. Á teglunum hér fyrir ofan er
búið að setja inn nýja reglutöflu sem og myndir af þeim
reglum sem nú eru í gildi.
11. sept 2009.
Á vorönn innleiddum við 19 reglur samanber
kennsluáætlun vorannar sem sjá má hér fyrir neðan.
Innlögnin gekk mjög vel enda flest allt reglur sem
börnin þekkja úr skólanum. Með innlögninni festust
reglurnar enn betur í sessi og svo var óneitanlega
hvetjandi að fá umbun í formi brosmerkja og sameiginlega
umbun í lok hverrar innlagnar. Börnin hafa sem sagt
verið til fyrirmyndar en það að vera til fyrirmyndar er
einmitt SMT- slagorð Pálmholts. Þann 14. september
byrjum við með innlögn þar sem frá var horfið og miðum
við að ljúka innlögn fyrir Sól og Regnboga í byrjun
desember.
Sjá
kennsluáætlun haustannar 2009 fyrir Sól og Regnboga hér.
Á Mána eru börnin öll nýbyrjuð og þekkja hvorki
reglurnar né innlagnarferlið þannig að þar verður byrjað
frá grunni.
Hér má
sjá kennsluáætlun haustannar 2009 fyrirMána.
21. jan.2009.
Í næstu viku munum við hefja innleiðingu á SMT-skólafærni. SMT-teymi
skólans er búið að vinna upp þrjár yfirreglur sem og 32
reglur sem eiga við mismunandi námsvið/viðfangsefni og
svæði innan skólans.
Yfirreglur eru:
- Að fara eftir fyrirmælum
- Að gæta handa sinna og
fóta
- Að nota inniröddina
Hér má sjá
allar SMT- reglurnar og viðeigandi myndir
Kennsluáætlun vorannar 2009.
Sjá hér
Öll kennsla fer fram gegnum
leik og æfingar. Fyrst er reglan kennd/leikin eins og
ætlast er til að farið sé eftir henni. Síðan er sýnt
hvernig ekki á að fara eftir reglunni og börnin spurð
hvort verið sé að framfylgja reglunni. Að lokum er
alltaf sýnd sú hegðun sem verið er að kenna og þykir til
fyrirmyndar. Með SMT- innlögn erum við ekki að gera
neinar stórkostlegar breytingar á aga eða hegðunarmótun
frá því sem verið hefur. Það sem er jákvætt við SMT-
skólafærni er að hún er styðjandi við hegðun barnsins og
samræmir viðbrögð kennara gagnvart hegðun, bæði
æskilegri og óæskilegri. Við munum innleiða
yfirreglurnar þrjár í næstu viku og taka okkur tvær
vikur í kennslu, æfingu, hrós og umbun. Síðan verða
innleiddar reglur fyrir hvert svæði/námsvið á þriggja
vikna fresti. Í lok hverrar innlagnar er gert ráð fyrir
að börnin fái umbun sem þau hafa valið sér í samráði við
kennara á hverri deild. Hver deild safnar sér
brosandlitum sem sett eru upp á hverri deild og þegar
ákveðnum fjölda er náð er haldið upp á áfangann með t.
d. poppveislu, gönguferð á bókasafnið o.s.frv. Hér má
sjá hvernig við settum upp
hvatninguna sem er
eitt af verkfærum SMT- skólafærni. Annað verkfæri í SMT-
skólafærni eru
skýr fyrirmæli. Þriðja verkfærið sem við höfum
aðlagað að okkar skóla er
mörk. Við hvetjum foreldra til að kynna sér vel
þessi SMT- verkfæri og hvernig við hyggjusmst innleiða
SMT- skólafærnina. Áætlun á innleiðingu reglna verður
sett inn á síðuna innan skamms.
Hér má finna nokkur hagnýt
uppeldisráð til foreldra.
PMT-uppeldisrád til foreldra
31. okt. 2008. Nú er
undirbúningsvinna vegna SMT langt komin hjá okkur og
áætlum við að halda fund með foreldrum á vorönn
2009 þar sem okkar útfærsla á SMT-skólafærni verður
kynnt. Einnig ætlum við að vera dugleg að setja
upplýsingar um framgang mála inn á þennan tengil.
SMT-teymið hefur haldist óbreytt frá upphafi og fundað
reglulega síðast liðið eitt og hálft ár. Mesta vinnan
hefur farið í að semja og samræma reglur fyrir öll svæði
skólans og setja upp sérstaka reglutöflu, velja myndir
fyrir hverja reglu, ræða um hvatningu, mörk, umbun og
skýr fyrirmæli. Seinni hluta nóvember er ætlunin að gera
skráningar á því sem við köllum meiri háttar
hegðunarbrot og minniháttar hegðunarbrot.
Minniháttar hegðunarfrávik geta verið:
Meiriháttar hegðunarfrávik geta verið:
Allir starfsmenn á deildum munu
skrá hegðunarbrot í tvær vikur. Þetta er gert til að
hafa samanburð fyrir innlögn og síðan verða gerðar
skráningar aftur þegar búið er að leggja inn reglur og
vinna með þær. Þannig getum við mælt og borið saman
árangur innlagnarinnar.
Upphafið
Haustið 2007 hóf leikskólinn
Pálmholt undirbúning að innleiðslu á SMT - skólafærni (School
management training)
eða jákvæðum stuðningi við hegðun nemenda. SMT -
skólafærni er útfærsla á bandarísku aðferðinni
Positive Behavior
Support /PBS. SMT er hliðstæð aðferð og PMT - foreldrafærni (Parent
management training) þar sem lögð er áhersla á að koma í veg fyrir
og draga úr hegðunarvanda með því að kenna og þjálfa félagsfærni,
umbuna fyrir æskilega hegðun og samræma vinnubrögð starfsfólks
gagnvart nemendum sem sýna óæskilega hegðun. Innleiðsla SMT -
skólafærni tekur þrjú til fimm ár og mun starfsfólk skólans nota
veturinn undirbúnings. Vorið 2007 sótti allt starfsfólk leikskólans
námskeið þar sem SMT og PMT var kynnt.
Stofnað hefur
verið SMT teymi við leikskólann sem undirbýr og annast innleiðslu
aðferðarinnar í skólann. Verkefnisstjóri er Sesselja Sigurðardóttir
leikskólaráðgjafi á skóladeild. Þrír fulltrúar í teyminu hafa loki PMT grunnmenntun og sá
fjórði lýkur sinni grunnmenntun í janúar 2009. Stefnt er að því að allir aðilar innan
teymisisns sæki sér
grunnmenntun í aðferðum PMT.
|